Möndluolía lífræn olía - 100 ml Grunnolía
Möndlutréð (Prunus dulcis) er upprunið í mið-Asíu og er hluti af Rosaceae (Rósroða) fjölskyldunni. Það er ræktað í löndum við Miðjarðarhafið og í Kaliforníu (meira en 80% af heims framleiðslunni). Ávöxtur trésins inniheldur yfirleitt aðeins eitt fræ, möndluna.
Upplýsingar:
Innihald: 100% hrein kaldpressuð jómfrúar olía úr Prunus dulcis (sweet almond)
Hlutir nýttir: Ávöxturinn
Stærð flösku: 100ML
Lífræn vottuð vara
Kostir: Rakagefandi fyrir þurra og viðkvæma húð. Mjög græðandi fyrir húðina og vinnur gegn skaða sem húðin verður fyrir af völdum sólarinnar. Hún getur einnig verið góð fyrir hárið og neglurnar. Möndluolían er meðal annars rík af E og K vítamíni.
Leiðbeiningar: Nýttu þessa olíu til að útbúa þínar eigin snyrti og vellíðunar vörur heima, sem hentar þér.
Hentugt að blanda með þínum uppáhalds ilmkjarnaolíum.