Lucienne, 9 handunnin kerti úr býflugnavaxi
Þessi yndislegu býflugnakerti koma 9 saman, í þessum sérsniðna, handunna kassa, til að tryggja öryggi þeirra í sendingu og varðveita sem best gæði þeirra. Þeim er fyrst pakkað inn í silkipappír, með býflugnamynstri og síðan lokað með innsigli fyrirtækisins Apiscera.
Lækkað verð vegna hagstæðs gengis
Þessi kerti nefnast Lucienne, sem er tilvísun til rótar orðsins Luc/Lux/Luz sem er latína fyrir ljós, en það á mjög vel við hér.
Lucienne er handunnið, með því að nýta sér hefðbundnar aðferðir við að rúlla upp býflugnavaxblaði utan um kveikiþráð, sem hefur verið bleyttur í vaxi. Sérkenni Lucienne kertana er fallega mynstrið sem líkist mynstri vaxköku í búi býflugna.
Býflugnavaxið, sem er notað í kertin frá Apiscera, hefur unnið til gullverðlauna hjá Apimondia, sem eru alþjóðleg sambönd býflugnaræktanda.
Apiscera nota 100 % hreint býflugnavax í kertin sín, engin aukaefni né litarefni eru notuð.
Litir og ilmur á kertunum, getur verið breytilegur, eftir árstíðum hitastigi eða uppruna.
Lögun og stærð, getur verið breytileg frá einu kerti til annars, því þau eru unnin í höndunum.
Kveikiþráðurinn er 100% bómull
Öll kertin frá Apiscera eru búin til samkvæmt hefð, í sátt við náttúruna.
Brenslutími: um 10 klst, til að lengja brenslutímann, þá er hægt að geyma kertin inn í kæli...þá brenna þau hægar. Einnig klippið af kveikiþræðinum, ef hann er of langur, kertið brennur hraðar með löngum þræði og loginn verður ekki eins fallegur.
Stærð kertis: mm 20 x 270
Særð box: mm 74 x 74 x 300