Legal notice
Skilmálar
Almennt
Seljandinn, klaran.is tekur við pöntun þegar staðfesting um greiðslu hefur borist. Þegar staðfesting á pöntun og greiðslu hefur borist, sendir seljandinn kaupanda staðfestingu á netfang kaupanda og er þar með kominn samningur á milli kaupanda og seljanda, þ.e. klaran.is.
Afhending
Allar vörur klaran.is eru til á lager nema annað sé tekið fram við birtingu vörunar. Að jafnaði tekur afgreiðsla pantana 1-2 virka daga eftir að staðfesting um greiðslu berst. Allar vörur sendar með Íslandspósti, 1- 2 virkum dögum eftir afgreiðslu pantana, nema ef um annað sé rætt eða eitthvað óvænt komi uppá.
Verð
Öll verð eru uppgefin í íslenskum krónum. Öll verð eru birt með fyrirvara um myndabrengl eða prentvillur. Seljandi áskilur sér rétt til að breyta verði á vöru án fyrirvara en verð eru almennt breytileg vegna verðbreytinga seljanda og birgja, gengisbreytinga og gjaldskrár sendingaraðila. Það verð gildir samt sem áður er fram kemur á pöntunarstaðfestingu kaupanda hverju sinni.
Heildarkostnaður við kaup á vöru kemur fram við hverja vöru fyrir sig, að undanskildum sendingarkostnaði sem bætist við í pöntunarferlinu. Áður en kaupandi staðfestir pöntunina endanlega og greiðir, þá kemur í ljós heildarverð með sendingarkostnaði.
Verð á sendingarkostnað getur verið breytilegt, það reiknast skv. gjaldskrá Íslandspósts hf.
Sendingarkostnaður
Sendingarkostnaður bætist við vöru áður en gengið er frá greiðslu. Sendingarkostnaður á pökkum, sem eru póstlagðir sem bréf (EINGÖNGU VÖRUR SEM KOMAST Í LÍTIL UMSLÖG) og komast inn um bréfalúgur, er 425 krónur (fyrir bréf undir 250 gr), (þeir eru ótryggði og órekjanlegir) en ef pantaðir eru 2 eða fleiri pakkar af slíkum vörum, þarf að senda þá sem pakka og kemur pakka sendingargjald, því þá komast þeir ekki í lúgu. Sendingarkostnaður er nú kr 1.430 á pakka (undir 2 kg) og er sá pakki rekjanlegur og í ábyrgð á vegum Íslandspósts hf. Einnig er Hægt að fá pakka keyrðan heim að dyrum, það kostar kr 1.990.
Einning eru þeir staðir á landinu, þar sem eingöngu hægt er að senda pakka með Landfluttningum og þá er sendingarkostnaðurinn kr 1.950 (fyrir pakka undir 2 kg).
Kostnaður við sendingarkostnaðinn getur breyst án fyrirvara, hann er í samræmi við gjaldskrá Íslandspósts hf. Ábyrgðir og flutningsskilmálar Íslandspósts gilda um afhendingu vörunnar.
Vörurnar
Upplýsingar um vörur eru settar fram eftir bestu vitund seljanda hverju sinni. Í framsetningu upplýsinga gerir seljandi fyrirvara um bilanir, birtingar- og/eða innsláttarvillur á myndum og texta. Sé vara uppseld kemur það fram á síðunni eða vara er tekin úr birtingu þangað til annað kemur í ljós. Ef klaran.is selur fyrir mistök vöru sem er ekki til á lager, þá er haft samband við kaupanda, honum boðin endurgreiðsla, að fella niður pöntun eða breyta pöntuninni.
Greiðslur
Hægt er að greiða pantanir með debitkorti, kreditkorti, netgíró eða bankamillifærslu.
Greiðslumöguleikar – Öruggt netumhverfi
Öll vinnsla greiðslukortaupplýsinga fer fram í öruggri greiðslugátt Kortaþjónustunnar. Klaran.is geymir engin kortanúmer.
Skila- og endurgreiðsluréttur
Samkvæmt lögum nr. 46/2000 um húsgöngu- og fjarsölusamninga getur neytandi fallið frá samningi um kaup á vöru yfir netið innan 14 daga frá pöntun með skriflegri yfirlýsingu. Ónotaðri vöru í upprunalegum umbúðum má skila gegn endurgreiðslu á klaran.is, innan 14 daga. Þó er sendingarkostnaður ekki endurgreiddur og Kaupandi ber einnig að greiða þann sendingarkostnað sem til fellur við skil á vörunni. Kvittun þarf að fylgja með vörunni og framvísa þarf vörunni í því ástandi sem hún var við kaup og í upprunalegum umbúðum, með innsigli. En ef vara er gölluð greiðir klaran.is sendingarkostnaðinn sem fellur til við skil á vörunni og endurgreiðir vöruna að fullu. Nauðsynlegt er að senda tölvupóst og skýra frá skilum vöru og einnig ef um gallaða vöru er að ræða, áður en hún er send í pósti. Þó ber nefna að þar sem klaran.is verslar með umhverfisvænar vörur og náttúrulegar vörur sem eru oft viðkvæmar, þá verður það að vera matsatriði þegar þær eru búnar að fara manna á milli.
Trúnaður og persónuupplýsingar
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskipti sín við Klaran.is. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
ÞESSI SAMNINGUR ER Í SAMRÆMI VIÐ ÍSLENSK LÖG
Fyrir hönd klaran.is
Susan Wilson