Endurnýtanlegur Baguettepoki

  • 2.800 kr
    Einingarverð per 
vsk innifalinn


Endurnýtanlegi baguette pokinn er hannaður til að geta borið nýtt brauð heim úr bakaríinu og geymt brauðið svo í pokanum.  Stefnan er með þessari hönnun að draga úr plastpokanotkuninni.  

 Pokinn er úr þykkri gæða bómull og er hannaður og framleiddur í Kanada, úr 100% náttúrulegri bómull frá Bandaríkjunum.  Náttúrulegir trefjar pokans gera hann ákjósanlegan til að geyma ferskt brauð, þar sem pokinn leyfir brauðinu að anda og heldur þvi fersku lengur.  Best er að loka pokanum vel, svo brauðið geymist sem best. Ósneitt brauð geymist betur en niðursneitt.

Hægt er að frysta brauð í brauðpokanum, en best er að hafa brauðið niðursneitt áður en fryst og passa að loka Baquette pokanum mjög vel.     

 

  • Stærð: cm 71 x 19.5 
  • Sjálfbær framleiðsla
  • Hannað og framleitt í Kanada

 Því sjaldnar sem pokinn er þveginn, því betra.  Hristið bara minslurnar úr og notið aftur.  Ef þurfa þykir, þvoið þá í köldu vatni, á þvottarplani fyrir viðkvæman þvott, notið ekki sterkt þvottarefni og ekki mýkingarefni.  Ekki setja pokan í þurkaran, leggið niður slétt og látið þorna.