Rósmarín ilmkjarnaolía 10 ml

Rósmarín ilmkjarnaolía 10 ml

  • 2.370 kr
    Einingarverð per 
vsk innifalinn


Rósmarín   (Rosemary - Rosmarinus officinalis)

Rósmarín er ein fyrsta jurtin til að vera notuð í matargerð, til lækninga og í galdra. T.d. voru gufur af jurtinni notaðar á miðöldum til að vernda gegn plágunni og til að halda illum öndum frá. Rósmarín kemur upprunalega frá löndunum við Miðjarðarhafið en er núna ræktuð víða og helstu framleiðendur Rósmarín ilmkjarnaolíu eru í Frakklandi, Spáni og Túnis.

Rósmarín ilmkjarnaolían er einna best þekkt fyrir bólgueyðandi áhrif og áhrif á minnisstöðvar í heilanum.  Hún eykur súrefnið í blóðinu og  getur haft góð áhrif á blóðflæði í líkamanum. Eins er hún mikið notuð til þess að örva hárvöxt. 


Leiðbeiningar:

Hægt er að nota olíuna fyrir heilsu og heimili t.d. sem herbergis sprey, í heitt bað, sem nuddolíu og í olíu lampa.  Notið ekki meira en 5-10 dropa af ilmkjarnaolíu fyrir hverja 20 ml af grunnolíum (sem dæmi: möndluolíu, ákveðnar matarolíur, með hlutlausum ilmi og fl.) vatn eða alkahól. Eins má anda henni að sér þegar verið er að læra til að efla minnið. Rósmarín og Tea tree í spreyi getur líka hjálpað til við að halda lúsinni frá. Einnig má blanda nokkrum dropum af olíunni í salt og setja út í baðvatnið ef um vöðvabólgu eða gigt er að ræða. 

Rósmarín á vel við flest allar olíur en sérstaklega vel við Lavender, Óreganó, Timian, Furu, Basil, Piparmyntu, Sedrusvið, Piparmyntu og krydduðum olíum eins og Kanil.  Þegar Rósmarín er sett í blöndu með öðrum olíum eykur hún á áhrif þeirra.  

Varúð

Til að forðast ertingu eða ofnæmisviðbrögð er gott að setja einn dropa af ilmkjarnaolíunni beint á húðina til að sjá hvernig hún bregst við en við mælum með að blanda alltaf ilmkjarnaolíum út í grunnolíu áður en hún er borin á húð til að forðast ertingu.  Geymið ilmkjarnaolíuna þar sem börn ná ekki til og fjarri sólarljósi. Ef olían berst í augu er best að setja t.d. ólífuolíu fyrst í augað og skola síðan með vatni. Leitið til læknis ef erting hættir ekki. 

Olían er eingöngu ætluð til útvortis notkunar. 

*ATHUGA:

1. Þó að ilmkjarnaolíurnar hafi marga góða kosti, þá er aldrei mælt með þeim í stað þess að leita aðstoðar hjá Fagfólki, s.s lækni, hjúkrunarfr. eða ljósmóður, þar sem það á við.  Olíurnar geta verið góð viðbót.

2. Notkun er ekki æskileg á meðgöngu

3. Rósmarín ilmkjarnaolían er ekki góð til lengdar fyrir fólk með háan blóðþrýsting og er alls ekki fyrir þá sem eru flogaveikir.


Fyrir frekari upplýsingar um heilunareiginleika og notkun iIlmkjarnaolía er best að leita til Ilmkjarnaolíufræðings.

Uppruni: Norður Afríka

Stærð: 10 ml

Pakkað í Bretlandi í glerflösku með áskrúfuðum plasttappa. 

Vottað eftir: IFRA stöðlum (IFRA - International Fragrance Association)