Nestisbox, Doda, lekaþolið, úr riðfríu stáli

  • 3.800 kr
    Einingarverð per 
vsk innifalinn


Rétthyrnt nestisbox úr lekaþolnu, riðfríu stáli.  Nestisboxinu er lokað og haldið læstu með einskonar krækjum, sjá mynd.

Sniðugt nestisbox til að taka með í vinnuna eða ferðalagið, þarna er pláss fyrir heila máltíð.

Einnig sniðugt undir matarafgangana í ískápinn. 

Nestisboxið er umhverfisvænt og er laust við plast, BPA, blýi og þalöt.

Lokið er með sílikon innsigli, þá lekur það ekki og hægt að geyma flestallan mat  í nestisboxinu, nema kannski súpu, ef það á að halda í langferð. 

Má fara í uppþvottavél, en ekki í örbylgjuofn.

Hægt að taka sílikonið af til þrífa og einfalt að setja á aftur


Framleitt á ábyrgan hátt í Indlandi

Allt í allt er nestisboxið - 17 x 7 x 13 cm og tekur 1050ml