Uppþvottasápukubbur 215 gr No Tox Life

  • 2.690 kr
    Einingarverð per 
vsk innifalinn


Uppþvottasápustykkið frá No Tox Life freyðir ríkulega og er einstaklega öflug á erfiða bletti og fitu án þess að þú þornir á höndunum.

Sápuna geturðu einnig notað við önnur almenn þrif á heimilinu, notað sem blettahreinsi á fatnað, náð límmiðum af krukkum, notað á bletti í golfteppum…svo sannarlega fjölhæf sápa.

Hvert 215gr. stk. dugar lengi og getur dugað þeim einstakling sem handþvær allt sitt leirtau (þ.e. notar ekki uppþvottavél) í allt að sex mánuði og ef það er aðeins notað á potta og pönnur dugar það mun lengur. (ath. að þar sem þetta er handgerð vara getur þyngdin rokkað frá 215 og upp í 225 gr.)

Notkun:

Hreinsið umfram matarleifar og fitu af disknum. Þegar þrífa á diska, skálar og bolla er gott að nota svamp. Bleytið svampinn og nuddið honum við sápuna til að búa til löður. Gott er að nota skrúbb á potta og pönnur. Sápan virkar bæði í heitu og köldu vatni en mælt er með heitu vatni.

Vinsamlegast athugið að ef eingöngu eru notaðir stífir burstar á sápuna eyðist hún hraðar heldur en ef notaður er mjúkur svampur.

Innihald:

Kókoshnetu sápa, aloe og þykkni af suður amerískum sápuberki,

Án:

Pálmaolíu, súlfat og parabena.
Vegan.

Varúð:

Þar sem sápan er mjög massif er ekki ætlast til að hún sé skorin niður í smærri hluta með öruggum hætti.

 Handgert af No Tox Life