News — klaran.is

Vörur frá Jessica Hogarth Designs komnar aftur...

Posted by Susan Wilson on

Vörur frá Jessica Hogarth Designs komnar aftur...

Kæru vinir, Nú eru komnar aftur vörur frá hinu yndislega merki Jessica Hogarth Designs.  Það eru meðal annars 2 tegundir af viskastykkjum, margnota bómullapokar og kort. Allar  vörurnar eru úr náttúrulegum gæðaefnum. Jessica Hogarth er listamaður sem teiknar upp og hannar sínar eigin myndir og vörur.  Hennar vörur eru allar unnar og framleiddar í Bretlandi.  Endilega kíkið á þessar yndislegu vörur...það er síðan ekki verra að þessi sending er á aðeins lægra verði en sú síðasta, vegna hagstæðs gengis... og það er frí heimsending beint inn um bréfalúguna...   Bestu kveðjur í rokinu, Susan klaran.is   

Read more →

Yndislegar vörur komnar...eða eru að skríða inn

Posted by Susan Wilson on

Yndislegar vörur komnar...eða eru að skríða inn

Nú er klaran að byrja að selja vörur sem eru búnar að vera draumur minn að taka inn í verslunina, í langan tíma...nú er loksins komið að því. Næsta skrefið í Býflugnavaxþemanu...umhverfisvæn kerti úr býflugnavaxi!  Þau koma bæði með ilmi og án.  Kertin sem eru án viðbætts ilms, anga af hreinum hunangsilmi.  Ilmkertin, eru með viðbættri hreinni  ilmkjarnaoliu, sem er unnin beint úr jurtum.  Aldrei er notuð ilmvötn eða tilbúnir ilmir í þessar vörur.   Kveikiþráðurinn er líka án málmefna, hann er úr 100% bómull.  Býflugnavaxkertin eru öll handunnin og koma úr náttúrulegum, sjálfbærum afurðum.  Einnig eru umbúðirnar sem kertin koma í, endunýtanlegar og...

Read more →

Nú eru jólin á næsta leyti

Posted by Susan Wilson on

Nú eru jólin á næsta leyti

Sæl verið þið kæru vinir, nú eru jólin á næsta leyti, Endilega kíkið á á flokkana jólagjafir undir kr 2000 og Jólagjafir undir kr 5000. Vona að þið finnið eitthvað fallegt og nytsamlegt handa ykkar nánustu eða kannski bara handa ykkur sjálfum. Bestu kveðjur, Susan  

Read more →

Nýjir og gamlir vinir komnir

Posted by Susan Wilson on

Nýjir og gamlir vinir komnir

Erum að taka upp úr kössum og setja á vefsíðuna og á facebook. Bæði vörur sem við þekkjum og erum búin að bíða eftir, eins og sílikon íspinnanálin og örbylgju poppkornskálin frá Lékué.  Svo líka nýjar vörur eins og connect stand fyrir bækur og spjaldtölvur og - stand fyrir eldhúsrúllur...bæði gert úr umhverfisvænu bambusi. Síðan eru fleiri vörur þarna niðri í kassa sem bíða eftir að komast á síðurnar...   Bestu kveðjur og góða helgi, Susan  

Read more →

Klaran er búin að fylla á Abeego lagerinn...

Posted by Susan Wilson on

Sæl verið þið kæru vinir, Hið frábæra umhverfisvæna Abeego, komið aftur og nú tvær pakkastærðir.  Abeego er meðal annars úr býflugnavaxi.  Annar pakkinn er sá sem við höfum verið með, með 3 blöðum í mismunandi stærðum.  Hinn er með 2 stórum blöðum.  Skoðið þessa yndislegu vöru nánar hér fyrir ofan og sjáið myndböndin.  Munið, engin heimsendingarkostnaður af Abeego!!    

Read more →