News — klaran.is
Nýjar fréttir af klaran.is 💚
Posted by Susan Wilson on
Klaran.is var að stíga stór skref, hún er komin inn í Íslenska verslun í Kringlunni 🤩
Vildi segja ykkur frá þessum stórmerkilegu og spennandi hlutum í lífi okkar. Þarna getið þið skoðað úrval af vörum frá klörunni, snert og fundið góða ilminn, sem ekki finnst í gegnum netið. Reyndar eru ekki allar vörurnar þarna en gott úrval.
Vefsíðan er enn í fullum gangi, samt sem áður. Fyrir þá sem panta af netinu og vilja sækja vörurnar sína, geta það hér eftir gert það í Íslenska verslun, hún er staðsett á fyrstu hæð í kringlunni, við hliðina á skartgripaverslunni Mebu og fyrir aftan Kaffitár.
Ég er spent að heyra hvað ykkur finnst um þessa nýju viðbót.
Bestu kveðjur,
- Tags: Íslensk verslun, klaran.is, ný staðsetning
Klaran.is er 7 ára í dag 3.8 2020
Posted by Susan Wilson on
Góđan daginn kæru vinir og viđskiptavinir 💚
Í dag á litla Klaran.is afmæli og er 7 ára, sem er ágætis aldur fyrir litla búđ. Ađ reka umhverfisvæna vefverslun, í sátt viđ hugsjón sína og gildi, er góđ tilfinning. Èg og Klaran.is munum halda áfram ađ gera góđa hluti og reyna ađ bæta okkur og læra nýtt.
Ég vil ljúka međ ađ þakka ykkur kærlega fyrir viđskiptin og vinskapinn á þessum árum og vonum ađ þađ verđi fullt af meiri árum 💚🐝
Bestu kveđjur,
Susan & Klaran.is
Pop up búð í desember
Posted by Susan Wilson on
Klaran.is ætlar að hafa opna litlu krúttlegu umhverfisvænu búðina í lagerhúsnæðinu, í desember, að Hamraborg 20a (beint á móti Subway) í Kópavogi 🌲 Opnunartími verður nánar auglýstur á heimasíðunni, og á samfélagsmiðlunum, en svo er líka alltaf hægt að hafa samband, eins og áður og fá að kíkja. Klaran verður einnig með á umhverfisvænum markaði, ásamt fullt af fleiri verslunum, á laugardaginn 7.desember 2019, á Eiðistorgi, á Seltjarnarnesi, milli kl 11-17, allir velkomnir. Bestu kveðjur, Susan Klaran.is
- Tags: desember, Fyrir börn og fullorðna, Gjafavara, jólagjafir undir kr 2000, jólagjafir undir kr 5000, jólin, jólin2019, klaran.is, náttúruleg efni, náttúrulegt, pop up búð, umhverfisvænt, vefsíða, viðskiptavinir
Tyrknesk handklæði!!!
Posted by Susan Wilson on
Sæl kæru vinir, vildi láta ykkur vita að við klaran erum loksins komin með tyrknesk handklæði 😉 Þau eru algjört æði, svo þunn, létt og rakadræg. Þau henta vel í ferðalagið og íþróttirnar, því það fer lítið fyrir þeim í tösku en þau eru líka mjög falleg þannig að þau sóma sér líka vel á heilmilinu, jafnvel á sófanum. Þau er handgerð af hönnuðum í sömu fjölskyldu, kynslóð eftit kynslóð. Handklæðin eru úr 100% OEKO TEX vottaðri tyrkneskri bómull. Bestu kveðjur í bili, Susan😊
Pantanir ekki afgreiddar fyrr en mánudaginn 20. ágúst vegna sumarfrís
Posted by Susan Wilson on
Sæl verið þið kæru vinir og viðskiptavinir, Litla klaran hefur ákveðið að skella sér í sumarfrí frá 2. ágúst til 20.ágúst og munu því pantanir ekki verða afgreiddar, fyrr en 20. ágúst. En að venju er heimasíðan ávallt opin, en eingöngu er bið á sendingum. Bestu sumarkveðjur, Susan
- Tags: afgreiðslutími, klaran.is, Sumarfrí, viðskiptavinir